Góustaðaættin

Aðalfundur Góustaða s.f. 2002

 

Aðalfundur Góustaða s.f. fyrir árið 2002 var haldinn á Góustöðum laugardaginn 27. júlí kl. 11 f.h.
Þessir voru mættir: Sigurður Sveinsson, Gunnar Sveinsson, Ólafur Sveinsson og Magni Guðmundsson.

1. Formaður Sigurður Sveinsson skýrði frá rekstri félagsins. Sami bústofn var og árið áður, 18 ær , fjórar gimbur og tveir hrútar.
Um fjörutíu manns, ættingjar og gestir hafa komið á Góustaði og dvalið þar lengri eða skemmri tíma samkvæmt gestabók.

2. Kostnaður vegna ljóss og hita hefur hækkað nokkuð og er nú ásamt fasteignagjöldum 70.000 kr. á ári. Samþykkt var að eigendur greiði kr 12.000 kr í rekstrargjald.

3. Stjórnin hvetur ættmenni til að notfæra sér aðstöðuna á Góustöðum og hafa samband við ábúanda um bókanir.

4. Stjórnin þakkar ábúanda fyrir góða umhirðu eigna og starfið á liðnu ári.

Gunnar Sveinsson ritari.

Samþykktir fyrir Góustaði s.f.

Senda póst til vefstjóra | ©2004 MSJ