mánudagur, maí 10, 2010
Jæja kæru ættingjar. Þar sem Blogger, vefsíðan sem hýsir fréttaveituna okkar, er að breyta kerfinu sínu og styður ekki lengur þessa tegund síðu ákváðum við að færa hana. Þar sem flestir Íslendingar eru komnir inná Facebook þótti okkur sniðugast að búa til Facebook-hóp og nýta hann til að miðla upplýsingum okkar á milli. Þessi síða fær að halda sér og hér verður áfram hægt að nálgast ættartöluna, myndir og allt hitt. Fréttirnar verða hinsvegar á Facebook, og við hvetjum ykkur til að ganga í þann hóp og taka þátt í umræðunni, senda inn pósta og myndir.
Góustaðaættin á Facebook
Kveðja, Magnús Sveinn og Ragnheiður.
þriðjudagur, mars 09, 2010
Á fundi í ættarmótsnefndinni á Ísafirði á sunnudagskvöld, 7. mars, var rætt um dagskrá ættarmótsins. Það er mikill áhugi á að fara í gönguferð á laugardeginum í nágrenni Góustaða td. frá Dagverðardal um Fellsháls og koma niður í Engidal, eða á Seljalandsdal yfir Miðfellsháls og jafnvel á Kistufell. Þá er hugmynd uppi um að halda golfmót á föstudegi en það tókst mjög vel síðast. Þetta er þó háð því að golfvöllurinn verði laus, en flest meistaramót golfklúbba eru í gangi á þessum tíma.
Einnig var rætt um að stofna Facebooksíðu, þar sem auðvelt er að tengjast og fá upplýsingar en upplýst verður um það síðar.
Ættarmótsnefndin.
þriðjudagur, febrúar 23, 2010
Þá fer að koma að hinu árlega Góukaffi í Víkinni. Það verður eins og áður fyrsta sunnudag í mars þ.e. 7. mars og stendur frá kl. 15.00 til 17.00 Allir koma með eitthvað á hlaðborðið. Boðið verður upp á heitt súkkulaði með rjóma og kaffi. Aðra drykki eru þið beðin að koma með. Við hvetjum alla til að mæta og hita upp fyrir ættarmótið í sumar. Nefndin
miðvikudagur, janúar 20, 2010
Kæru ættingjar.
Þá er komið að hinu árlega þorrablóti okkar heimalaukanna sem verður haldið 13. febrúar. Venjan er sú að það er mikill og góður þorramatur á boðstólum og það hefur legið við að borð hafi svignað undan kræsingum.
Gaman væri að sjá einhverja gesti og eru Góustaðir tilbúnir undir gestakomur. Einnig er hægt að nýta ferðina og taka skíðin með.
Bestu kveðjur að vestan,
Guðríður Sig
miðvikudagur, október 21, 2009
Nú ættu allir meðlimir Góustaðaættarinnar, eða Góustaða átthagafélags eins og félagið heitir opinberlega, að hafa fengið rukkun í heimabankann sinn eða greiðsluseðil inn um lúguna vegna árgjaldsins. Gjaldið er notað til reksturs og viðhalds Góustaðabæjarins. Eins og fram kemur í frétt hér fyrir neðan er ættarmót á næsta ári og þá má búast við að eitthvað brýnt viðhaldsverkefni verði tekið fyrir. Því er nauðsynlegt að heimtur verði góðar eins og þær hafa reyndar verið á undanförnum árum.
Á fundi heimalaukanna á Ísafirði sem haldinn var í lok september var ákveðið að ættarmótið næsta sumar verði haldið dagana 9. -11. júlí. Þeir sem nú þegar eru byrjaðir að skipuleggja sumarfríið 2010 ættu því að taka þessa daga frá. Ekki hefur verið ákveðið hvort skipulagðir verði vinnudagar dagana fyrir ættarmótið eins og gert var síðast en það verður tilkynnt með góðum fyrirvara. Nú geta allir farið að hlakka til!
sunnudagur, júlí 12, 2009
Fjóla Þórdís Jónsdóttir (dóttir Röggu Gunnars) og Davíð Óskarsson eignuðust dóttur þann 7. júlí. Hún er þeirra fyrsta barn og mældist 12 merkur og 46 cm og fæddist með mikið dökkt hár. Allt gengur mjög vel og fjölskyldan litla fór heim af spítalanum á föstudag. Hér eru þrjár myndir frá fyrstu dögum.
sunnudagur, maí 10, 2009
Þann 2. maí sl. fór 60. Fossavatnsgangan (www.fossavatn.com) fram í ágætisveðri. Um 230 manns voru skráðir í gönguna þar sem keppt var í 7, 10, 20 og 50 km göngu.
Góustaðasveitin var mætt í 20 km gönguna en þetta er í þriðja sinn sem hún tekur þátt í sveitakeppninni. Í sveitinni hafa verið Magni, og Svenni Guðmunds og Geir Sigurðs. Sveitin hefur allt síðastliðið ár stundað miklar og strangar æfingar og má nefna að Svenni tók þátt í Vasagöngunni sem er 90 km skíðaganga í mars sl. til að undirbúa sig fyrir átökin. Liðsmenn hafa endurnýjað skíði, stafi og skó. Álagið af æfingum tók sinn toll og í fyrsta sinn þurfti að kalla inn varamann þar sem Svenni hafði ekki jafnað sig af hásinarbólgu eftir að hafa tekið þátt í Vasagöngunni. Eftir að hafa skoðað kostina ákvað sveitin að kalla til sem varamann Magnús Björnsson góðan félaga og göngugarp. Magnús er ættaður frá Eiðum og þekkir vel til Steina leggsins.
Eftir mikla baráttu þar sem sveitin keppti við aðrar sveitir sem hafa á að skipa margföldum íslandsmeisturum og öðru álíka hafnaði hún í 5. sæti á samanlögðum tíma 4.83klst. Ekki þarf að taka fram að allt fór þetta fram undir vökulu auga ættarhöfðingjans.
Hér eru svo nokkrar myndir:




mánudagur, apríl 27, 2009
Þann 3. mars 2009 eignuðust Lilja Ólafsdóttir (dóttir Guðríðar Þorsteins) og Þórólfur Steinar Arnarson son. Hann var 16 merkur og 52 cm. Drengurinn hefur verið skírður Atli Steinar. Fyrir eiga þau dótturina Birtu Ósk, sem er fædd 2003. Hér má sjá mynd af þeim systkinum sem var tekin daginn eftir að Atli Steinar kom í heiminn. Til hamingju Lilja, Þórólfur og Birta með nýja fjölskyldumeðliminn!
miðvikudagur, febrúar 25, 2009
Nú er aðgengileg hér á síðunni nýjasta útgáfa af ættartölu Góustaðaættar hverju sinni. Ef smellt er á Ættartala hér til vinstri er hægt að velja á milli HTML og PDF útgáfu af skjalinu. Endilega sendið lagfæringar og viðbætur til mín.
Kveðja, Magnús Sveinn.
fimmtudagur, febrúar 19, 2009
Þann 19. janúar 2009 fæddist þeim Svanhildi Karlsdóttur (dóttur Hildar og Kalla) og Antoni Magnússyni sonur. Hann var 16 merkur og 53,5 cm. Drengurinn hefur verið skírður og gefið nafnið Dagur Örn. Við óskum þeim hjónum og systkinunum Breka og Rakel innilega til hamingju með strákinn.
fimmtudagur, febrúar 12, 2009
Sælir ættingjar.
Þá höfum við frænkurnar fundað. Við hittumst hjá Sigrúnu í Engjaselinu í vikunni: Sigrún Sig., Fríða, Ella, Guðríður Ól., Ólöf og undirrituð.
Góukaffið verður 8. mars eins og áður hefur komið fram og með hefðbundnum hætti. Mæting er k l 15.00 og áætlað að samkoman standi til 17.00. Allir koma með eitthvað á hlaðborðið að eign vali. Á staðnum verður boðið upp á heitt súkkulaði og kaffi. Aðra drykki verður fólk að koma með sjálft.
Við auglýsum eftir skemmtiatriðum, t.d. söng eða hljóðfæraleik og leikjum fyrir yngstu kynslóðina. Hvetjið börnin til þess að koma með einhver stutt atriði.
Við hvetjum alla til þess að mæta og látið þetta berast.
Hlökkum til að sjá ykkur. F. h nefndarinnar Ragnheiður Gunnars.
miðvikudagur, febrúar 11, 2009
Kæru ættingjar.
Mig langar til að minna ykkur á að þið hafið aðgang að okkar ættaróðali Góustöðum. Tilvalið er að nýta sér það til að koma á skíði eða í gott vetrarfrí. Hér á Ísafirði er frábært skíðasvæði í Tungudal með 3 skíðalyftum og upplýstum brekkum fyrir alla, og einnig er upplýst gönguskíðafæri á Seljalandsdal og eru troðnar göngubrautir þar alla daga.
Bestu kevðjur til ykkar allra,
Guðríður Sig.
Sælir ættingjar.
Búið er að panta Víkina sunnudaginn 8. mars. fyrir Góukaffi. Takið daginn frá. Við frænkurnar eigum eftir að hittast og skipuleggja þetta betur. Nánar bráðlega.
Bestu kveðjur, Ragga.
fimmtudagur, janúar 15, 2009
Fyrir jólin gaf Gunnar Sveins út veglega bók með æviminningum og var hún send til ættingja fyrir jólin. Í tilefni þess hélt fjölskyldan útgáfuteiti þann 21. desember þar sem Gunnar las stuttan kafla úr bókinni og boðið var uppá veitingar. 

þriðjudagur, janúar 13, 2009
Þorrablót Heimalauka Góustaðaættar verður haldið 14. febrúar næstkomandi í Kiwanishúsinu við ósa Úlfsár.
Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að mæta, því þetta er merkisblót, nánar um það síðar. Við minnum á að húsið á Góustöðum er í góðu standi og vonumst við til að sjá sem flesta sem lengra eiga með að fara. Nánari tímasetningar verða sendar síðar. Mæting Heimalauka hefur verið um 100%.
Bestu kveðjur,
Magni.
fimmtudagur, ágúst 14, 2008
12. ágúst s.l. eignaðist Tinna hennar Ellu og Emanuele kærastinn hennar litla 14. marka stúlku.
Þetta er nýjasti meðlimur Góustaðaættarinnar og fæddist hún á afmælisdegi Guðríðar á Góustöðum. Við óskum foreldrum og ömmu og afa til hamingju með stúlkuna. Hér er mynd af henni.
þriðjudagur, ágúst 05, 2008
Nú eru komnar myndir frá auka ættarmótinu sem Gísli Gunnars tók. Smellið hér til þess að skoða myndirnar.
föstudagur, ágúst 01, 2008
Fundur var haldinn í betri stofunni á Góustöðum laugardaginn 25. júlí 2008. Mættir voru Gunnar Sveinsson, Magni Guðmundsson, Guðríður Sigurðardóttir og Sigurbjörn Gunnarsson.
1. Fulltrúar framkvæmdanefndar þau Guðríður og Sigurbjörn gerðu grein fyrir framkvæmdum en í framkvæmdanefnd Góustaða eru: Guðríður Sig, Sveinn Guðmunds, Sigurbjörn Gunnars, Karl Ólafs, Oddur Vilhjálms og Hólmfríður Þorsteins. Þau hafa keypt 6 sængur og 6 kodda, látið setja ofn í strigaprívatið og handklæðaofn á baðherbergið. Einnig hafa verið keypt tvö ný rúm sem Ólafur Sveinsson greiddi. Lögð hefur verið stétt fyrir framan bílskúrinn. Það framkvæmdu þeir Geir, Gauti, Sammi og Atli en Gunnar Sveinsson greiddi.
2. Framkvæmdanefndin leggur til að árgjald fyrir næsta ár verði: Annar ættliður kr. 6000 og þriðji ættliður kr. 3500 og var það samþykkt.
3, Ábúandinn sá um hirðingu á túninu og voru það 24 rúllur. 3 kindur tilheyra búinu.
4. Góustaðaættin átti fulltrúa í Fossavatnsgöngunni og voru það Geir Sigurðar, Magni Guðmunds og Sveinn Guðmunds og kölluðu þeir sig Góustaðasveitina.
5. Gert var grein fyrir reikningum og var tekjuafgangur og er staðan góð.
6. Stjórn Góustaða þakkaði ábúanda og framkvæmdanefndinni fyrir vel unnin störf.
Fleira ekki gert og fundi slitið.
miðvikudagur, júlí 30, 2008
Auka ættarmótið helgina 25.-27. júlí sl. tókst með ágætum. Rúmlega 50 manns úr ættinni voru á staðnum í blíðskaparveðri. Á föstudeginum var golfmót á golfvellinum í Tungudal og voru þátttakendur um 15 í aðalmótinu og yfir 20 manns í púttmóti sem fór fram þegar hinu eiginlega golfmóti var að ljúka. Veðrið var alveg dýrðlegt heiður himinn og glampandi sól.
Um kvöldið var svo boðið upp á kakó á nýju stéttini við skúrinn, bæði barna og fullorðins og meðlætið var"Sæmundur" og "Sæmundur í sparifötunum". Þetta var eiginlega vígsla á stéttinni, nýja borðinu og bekknum. Fullorðna fólkið spjallaði saman og börnin óðu í ánni og léku sér.
Á laugardeginum var farið til Bolungarvíkur og þaðan upp á Bolafjall og var þar blankalogn og frábært útsýni. Síðan var farið niður í Skálavík og fjaran skoðuð og börnin óðu í ánni.
Um kvöldið komu svo allir saman við skúrinn. Þá var búið að koma bekkjum og borðum fyrir í skúrnum og koma með nokkur grill og pönnur sem ég man ekki hvað heita en þær eru hitaðar með gasi. Þar gátu allir grillað sitt kjöt. Við borðuðum síðan saman og úrslit í golfmótinu voru tilkynnt. Sigurvegararnir voru: 1. sæti Gunnar Sveinn . 2. sæti Gauti Geirs og í 3. sæti var svo Gunnar Jarl kærastinn hennar Kristrúnar Kristins. Geir fékk verðlaun sem efnilegasti nýliðinn.
Í unglingaflokki voru 2 þátttakendur þær Katla Rúnars hennar Mörtu Magna og Kolfinna hans Einars Gunnlaugs. Þær fengu báðar verðlaun. Í púttinu var Guðríður Sigurðar í 1. sæti og Dúddi hennar Þórdísar í 2. sæti og í 3. sæti var Gunnar Sveinsson. Hann vann það sæti eftir hörku spennandi bráðabana við Jennýju hans Sibba. Þettar var skemmtilegt kvöld og allir sem hafa verið á ættarmóti á Góustöðum vita hvernig þetta er.
Á sunnudeginum fóru margir að hugsa til heimferðar en sumir ætluðu að vera lengur.
Við ræddum mikið um næsta ættarmót sem verður 2010 og að öllum líkindum fyrstu helgina í júlí. Allavega töluðum við ekki um neina aðra dagsetningu. Allir voru strax farnir að hlakka til. Takið helgina frá :)
Ragga Gunnars.
þriðjudagur, maí 06, 2008
Sæl öll
Eins og fram hefur komið áður og getið hefur verið á Góustaðasíðunni er stefnt að því að halda auka ættarmót eða Góustaðadaga síðustu helgina í júlí þ.e. dagana 25. -27. júlí. Við viljum því minna þá á sem ætla að mæta vestur að taka þessa helgi frá. Þetta verður óformlegt mót og aðal málið að koma saman, hitta ættingjana og gera eitthvað skemmtilegt. Það eina sem er skipulagt er að stefnt er að halda Meistaramót Góustaða í golfi, líklega á föstudeginum. Við látum vita betur af því þegar nær dregur. Við hlökkum til að sjá sem flesta og biðjum ykkur sem lesið þetta að koma skilaboðunum til þeirra sem þið sjáið að eru ekki á póstlistanum.
Bestu kveðjur,
Framkvæmdanefndin.
miðvikudagur, mars 19, 2008
2. mars kom Góustaðaættin saman í Víkinni þ.e. þeir sem voru staddir sunnan heiða þennan dag. Allir Góustaðabræðurnir voru mættir og Anna Lóa frá Ísafirði og Þorbjörg Þorsteins frá Akureyri og svo við sunnanfólkið. Alls mættu þarna 80 manns sem drukku saman súkkulaði og gæddu sér á kökum. Mest var þó gaman að hitta alla og spjalla og gerði fullorðna fólkið það. Yngsta kynslóðin lék sér saman og hljóp um húsið í eltingaleik. Það er alltaf jafn gaman að hittast og fá fréttir af ættingjunum. Mikið var tekið af myndum og skora ég á myndasmiðina að setja myndirnar inn á síðuna.
Síðustu helgina í júlí verður auka ættarmót á Góustöðum og voru umræður um það hverjir ætla að mæta og fannst mér mikill áhugi hjá fólki.
Látið endilega frá ykkur heyra á síðunni og komið með tillögum um hvað væri hægt að gera sér til gamans. Nú er engin undirbúningsnefnd að störfum og verður þetta spilað af fingrum fram.
Bestu páskaveðjur úr Keflavík, Ragnheiður og Gísli.
miðvikudagur, janúar 16, 2008
Gleðilegt nýtt ár.
Loksins kemst ég inn á síðuna þetta er allt of flókið þess vegna koma svona fáar frétti.
JÆJÆ.....Þorsteinn og hans sambýliskona eignuðust einegga tvíbura 23. okt. tvo stráka
og voru þeir skírðir 29. des og heita þeir Patrekur og Viktor. Allt gengur vel bara nóg að gera.
Við Óli eigum orðir 7.barnabörn ekkert smá rík.Allt gott að frétta af norðurlandi lítill snjór
í byggð nóg í fjallinu.Athugum hvernig stendur á í sumar með að mæta í gleðskapinn væri
gaman.Bestu kveðjur til allra Gurra og Óli.
þriðjudagur, janúar 15, 2008
Hið árlega Góukaffi í Vikinni verður að þessu sinni þann 2. mars.
Við hvetjum alla hér syðra og einnig ykkur úti á landi að koma. Að þessu sinnu ætlar Gunnar Sveinsson að bjóða upp á veitingar, heitt súkkulaði og rjómatertu og kannski eitthað fleira. Það gerir hann í tilefni af 85 ára afmæli sínu sem er þann 10. mars. Annars á þetta bara að vera venjulegt Góukaffi (engar gjafir eða blóm). Ef einhvern langar til þess að vera með skemmtiatriði þá er það velkomið en að öðru leiti er engin dagskrá bara að hittast, drekka súkkulaði og gleðjast saman.
Ég óska nýbökuðum foreldrum , Bubbu og Atla og Þorsteini Ólafs. og hans kærustu, innilega til hamingju með börnin.
Bestu kveðjur, sjáumst í Víkinni 2. mars. Ragga Gunnars.
mánudagur, janúar 14, 2008
Ákveðið hefur verið að efna til óformlegs ættarmóts á Góustöðum, ?Góustaðadaga?, næsta sumar n.t. dagana 24./25. ? 27. júlí. Dagarnir verða ekki skipulagðir eins og venjulegt ættarmót heldur koma þeir sem geta og vilja til að hitta ættingja og vini. Öll aðstaða á Góustöðum stendur til boða og síðan látum við ráðast hvað gert verður. Stefnt er þó að því að halda Meistaramót Góustaða í golfi. Nánar verður sagt frá þessu á Góustaðasíðunni þegar nær dregur en nú er um að gera að taka þessa daga frá.
Nefndin
sunnudagur, janúar 13, 2008
Kæru ættingjar. Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla! Bubba eignaðist stelpu þann 11. október og hefur hún hlotið nafnið Guðríður Vala og þar með ætlar hún að viðhalda nafninu í ættinni, frábært:) Allt gott að frétta héðan, Góustaðir í fínu standi og búið að setja nýjan ofn í Stebba herbergi og handklæðaofn á baðið. Vonast eftir að sem flestir nýti sér þessa góðu aðstöðu á komandi ári. Kveðja frá brennustjóranum og frú.
Bestu kveðjur Guðríður Sig.
mánudagur, janúar 07, 2008
Kæru ættingjar og vinir.
Gleðilegt nýtt og farsælt komandi ár með þökk fyrir liðnar ánægju og samverustundir.
Mér veitist sá heiður að tilkynna að hið árlega þorrablót Góustaðaættar verður haldið í Sigurðarbúð (Kivanishúsinu) á Skeiði Laugardaginn 2 Febrúar næstkomandi, var þann 3ja í fyrra. Verður þar eitthvað örugglega til skemmtunar en fyrst og fremst nóg að borða og drekka og mikið glens og gaman eins og alltaf áður. Vonumst við til að sjá sem flesta mæta með sínum fjölskyldum og vonumst við til að einhverjir sem lengra þurfa að fara en hér innan Skutulsfjarðar sjái sér fært að mæta. Við erum með nægjanlegt húspláss vegan þess að ekkert heimili okkar rúmar blótið lengur því að hér við Skutulsfjörð reiknast vera um 40 manns, og venjulega hefur mætingin verið milli 98 og 100 prósent, því allir sem vettlingi geta valdið þeysast á Góustaðablótið allt frá hinum síunga 86 ára Sigga Sveins til yngsta afkomanda Guðríðar og Sveins hér við Fjörðinn sem ég bara man ekki hvort er dóttir Bubbu Samma, sm fæddist á síðast ári. Ég minni á að til reiðu stendur húsið á Góustöðum , með að minnsta kosti einum nýjum miðstöðvarofni og handklæðaofni á baðinu. Þannig að gisting er fyrir hendi.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Magni
sunnudagur, október 21, 2007
Ágætu ættingjar.
Á næstu dögum getið þið reiknað með að fá gíróseðlana senda til ykkar. Upphæðin er sú sama og í fyrra. Það voru nánast 100% heimturnar úr fyrstu útsendingu sem er frábært og sýnir hvern hug við höfum til Góustaða. Fjárhagsstaðan er sæmileg og ekki mikið svigrúm til aðgerða en við munum gera betur grein fyrir henni um áramótin.
Sófinn sem Guja amma átti er komin aftur í stássstofuna en Hildur Þ. var svo elskuleg að láta okkur fá hann. Núna verður farið að leita að tveim stólum sem passa við. Sófinn og stólarnir sem voru fyrir enda líklega í áramótabrennunni hans Sigga.
Við ætlum að kaupa 8 sængur og rúmföt sem verða til afnota fyrir okkur. Ætlar Guðríður að sjá til þess að rúmfötin séu hrein þegar við þurfum á þeim að halda. Við þurfum þá ekki að hafa slíkt með okkur þegar við skreppum næst vestur.
Annars er notkuninn mjög lítil og viljum við hvetja fólk til að nýta sér aðstöðuna. Bjallið bara í Guðríði og hún tekur niður pantanir.
Með bestu kveðju.
Fh. framkvændanefndar
Svenni G.
föstudagur, október 19, 2007
Þá er netfangaskráin komin á netið aftur. Til þess að reyna að sporna við því að fólk fái ruslpóst hefur öllum @ merkjum verið breytt í [hjá]. Þannig að til þess að senda fólki póst þá þarf að breyta [hjá] yfir í @. Þetta gildir líka um krækjuna "Senda póst til vefstjóra".
Ekki er lengur hægt að senda póst á alla á listanum í einu. Ef einhver óskar eftir netfangalistanum í heild sinni þá er hægt að nálgast hann hjá vefstjóra.
Listinn hefur verið uppfærður af og til, en því miður eru enn nokkuð mörg netföng vitlaus. Ég hef reynt að uppfæra hann með þeim leiðréttingum sem ég hef fengið um leið og þær berast, en ef það hefur ekki gengið eftir einhverra hluta vegna þá er best að senda mér aftur póst.
Magnús Sveinn.
maggisv[hjá]gmail.com
laugardagur, maí 19, 2007
Netfangaskráin hefur verið tekin út af síðunni tímabundið. Hún var orðin úrelt en hún verður uppfærð og kemur vonandi aftur inná síðuna von bráðar.
Magnús Sveinn.
föstudagur, maí 11, 2007
Ágætu ættingjar.
Í mars sl. ákváðum við bræður (Svenni og Magni) að skella okkur í Fossavatnsgönguna. Fossavatnsgangan er 22 km skíðaganga sem farin er milli Fossavatns og Seljarlandsdals. Gangan er elsta almenningsskíðaganga sem haldin er hér á landi. Sjá www.fossavatn.com.
Þegar við uppgötvuðum að hægt væri að skrá lið í keppnina fengum við Geir frænda með í lið með okkur. Eðlilega var liðið svo nefnt Góustaðaliðið. Magni og Geir eru alvanir skíðagöngumenn og hafa oft tekið þátt í Fossavatnsgöngunni. Á strategíufundi (sem haldin var á Seljalandi rétt fyrir miðnætti 27. apríl) voru þeir sammála um að þetta árið yrði um undirbúningskeppni liðsins að ræða. Það skyldi tekið á því á næsta ári!
Vafalaust gerðu þeir þetta af tillitssemi við undirritaðan svo keppnisskapið gengi ekki af honum dauðum á leiðinni. Vandamálið er nefnilega að ég byrjaði að æfa mig á gönguskíðum í mars sl. Í snjóleysinu hér sunnanlands gefst ekki oft tækifæri til æfinga. Samtals hafði ég farið ca. 7-8 sinnum á gönguskíði þegar ég fór í keppnina. En hvað um það.
Það var létt yfir meðlimum Góustaðaliðsins þegar það mætti á ráspól uppi á heiði ásamt hinum 250 keppendunum. Auðvitað var sól og 10° hiti og næstum því logn þegar við lögðum af stað. Magni og Geir hurfu úr augsýn á augabragði. Ég renndi mér áfram með konum mér jafngömlum og eldri og smátt og smátt ruddust karlmenn mér mun eldri framúr líka. En þetta hafðist allt saman og þakka ég það ágætis úthaldi sem ég hef fengið af því að hjóla. Auðvitað spillti góða veðrið ekki fyrir.

Við meðlimir Góustaðaliðsins viljum hvetja ykkur ættingjar góðir til að taka þátt í Fossavatnsgöngunni með okkur á næsta ári. Hægt er að skrá sig í 7km. 10km. 20km og 50km.
Í verðlaunaafhendingunni að lokinni keppni gáfum við systkinin (Magni, Anna Lóa, Þórdís og Svenni) mótshöldurum veglegan bikar í minningu pabba. Bikarinn sem er farandbikar er fyrir bestan árangur íslenskra kvenna í 50km göngu.

Hér á eftir sjáið þið það sem sagt var við afhendinguna.
"Þessi bikar sem er afhentur hér í fyrsta skipti er gefin til minningar um föður okkar Guðmund Sveinssonar netagerðarmeistara frá Góustöðum hann var fæddur 9. apríl 1913 og lést 9. apríl 1987. Hann var mikil áhugamaður um skíðaíþróttir og var formaður Skíðafélags Ísafjarðar í fjölmörg ár. Þar tók hann þátt í byggingu og rekstri Skíðaskálans og skíðalyftanna á Seljalandsdal. Hann vann mikið við skíðamót mest göngumót og lagði oft göngubrautir á innanhéraðsmótum og landsmótum. Einnig lagði hann nokkrum sinnum brautina fyrir Fossavatnsgönguna. Óhætt er að segja að hann hafi að öðrum ólöstuðum verið ein aðal driffjöðurinn á bak við uppbyggingu skíðasvæðisins á Seljalandsdal á sjöunda og áttunda áratugnum. Hann var mikill útvistarmaður og hafði þá trú að skíðaiðkun væri best til þess fallinn að sameina fjölskylduna í úti í náttúrunni í skemmtun sem keppni. Hann hvatti því óspart til skíðaiðkunar og að fólk nýtti sér aðstöðuna á Seljalandsdal sem hann taldi að væri sú besta sem völ væri á hér á landi.
Bikarinn er farandbikar sem veittur er fyrir besta árangur íslenskra kvenna í 50 km keppni í Fossavatnsgöngunni.
Við systkinin, viljum þakka forsvarsmönnum Fossavatnsgöngunnar fyrir þetta tækifæri til að minnast föður okkar."
Sú sem hlaut bikarinn í ár var Stella Hjaltadóttir.
Fleiri myndir eru væntanlegar á www.tomstund.net. Sjáumst svo hress í Fossavatnsgöngunni að ári og vonandi fyrr.
Kveðja,
Svenni.
P.S. Rétt er að minnast á að afi "Sveinn Guðmundsson á Góustöðum" hefði orðið 120 ára þann 27. apríl sl.
þriðjudagur, maí 01, 2007
Ég var að ljúka við að setja inn mikið af leiðréttingum á netfangaskránni og nokkrar viðbætur. Ef þið vitið af fleiri villum eða vitið um einhvern sem langar að vera á listanum þá getið þið sent mér póst. Og auðvitað hvet ég alla til að skrifa eitthvað á síðuna til að halda henni lifandi! Leiðbeiningarnar eru hér á síðunni undir "Skrifa frétt".
Magnús Sveinn.
miðvikudagur, apríl 11, 2007
Önnur tilraun til að setja myndirnar inni. Kveðja Ragga.